Consensa, ráðgjafarfyrirtæki í Mosfellsbæ sem sérhæfir sig í opinberum innkaupum, er orðið hluti af alþjóðlegu samstarfi lögfræðinga og innkaupasérfræðinga sem veitir opinberum aðilum víðs vegar um Evrópu sérhæfða ráðgjöf. Fyrirtækið var stofnað árið 2019 af Birgi Erni Birgissyni lögfræðingi og hefur frá upphafi unnið að undirbúningi og framkvæmd útboða fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir hér á landi.
Fyrr á þessu ári tók Consensa þátt í útboði Evrópusambandsins ásamt Corvers og EY Consulting. Nú liggur fyrir að samstarfshópurinn hefur hlotið samninginn og er framkvæmd verkefnisins að hefjast.
Samningurinn er hluti af verkefninu European Assistance for Innovation Procurement, EAFIP, sem miðar að því að efla nýsköpun með opinberum innkaupum. Verkefnið er fjármagnað innan Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlunar Evrópusambandsins, sem Ísland tekur þátt í.
Með samstarfinu getur Consensa veitt ríkisstofnunum, sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum í Evrópu aðstoð við undirbúning og framkvæmd innkaupa sem ætlað er að stuðla að þróun nýrrar tækni og lausna. Ráðgjöfin getur meðal annars falist í þarfagreiningu, markaðskönnunum, gerð útboðsgagna og samninga auk framkvæmdar útboða.
Consensa er þar með hluti af evrópsku sérfræðineti þar sem lögð er áhersla á að opinberir kaupendur fái ráðgjöf á eigin tungumáli og í samræmi við lög og reglur í viðkomandi landi.
Consensa veitir jafnframt hér á landi alhliða ráðgjöf á sviði opinberra innkaupa og tekur að sér framkvæmd útboða óháð tegund innkaupa. Fyrirtækið aðstoðar einnig fyrirtæki og aðra bjóðendur við þátttöku í opinberum innkaupum.
Birgir Örn hefur sérhæft sig í málaflokknum um árabil og starfaði áður sem lögfræðingur hjá Ríkiskaupum. Með þátttökunni í EAFIP fær sú sérþekking sem byggð hefur verið upp hjá Consensa í Mosfellsbæ nú einnig vettvang í alþjóðlegu samstarfi.
Fyrirtækið leitar nú að hentugu skrifstofuhúsnæði í Mosfellsbæ. Birgir Örn segir vilja standa til þess að halda áfram að byggja upp starfsemina í heimabænum og finna húsnæði sem geti stutt við framtíðarvöxt fyrirtækisins.