Laugardagur, 21. nóvember 2026
Forsíða
Fréttir

Hlaðhamrar fagna 50 ára afmæli

Hlaðhamrar fagna 50 ára afmæli
2 mín. lestur
Facebook

Mikil og góð saga fylgir Hlaðhömrum en í starfi skólans hefur lengi verið lögð áhersla á sköpun, forvitni og virkni barnanna. Skólinn starfar í anda Reggio Emilia-hugmyndafræðinnar þar sem litið er á börn sem hæfa og skapandi einstaklinga sem læra með því að kanna, prófa og upplifa umhverfi sitt.

Áhugi barnanna fær að móta viðfangsefni skólastarfsins og þau eru hvött til að rannsaka, skapa og tjá sig á fjölbreyttan hátt.

Afmælinu var fagnað í aðstöðu Hlaðhamra í Sumarhúsum þar sem starfsemi leikskólans hefur verið undanfarin misseri vegna húsnæðismála.

Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri mætti í afmælið og færði leikskólanum gjöf frá Mosfellsbæ. Hilmar á sjálfur tengingu við skólann, enda var hann nemandi á Hlaðhömrum á sínum yngri árum.

Hann þakkaði starfsfólki leikskólans sérstaklega fyrir lausnamiðaða nálgun, hlýju og faglegt starf við þær aðstæður sem skapast hafa. Jafnframt lagði hann áherslu á ábyrgð Mosfellsbæjar á að tryggja hagsmuni barnanna þegar ákvarðanir verða teknar um framtíðarhúsnæði leikskólans.

Prumpulagið vakti lukku

Afmælishátíðin var þó ekki aðeins formleg. Dagur Magnússon, 15 ára fyrrverandi nemandi Hlaðhamra, flutti Prumpulagið við mikla kátínu viðstaddra og Hilmar bæjarstjóri greip svo í gítarinn og lék undir í afmælissöngnum.

Á fimmtíu árum hefur fjöldi Mosfellinga stigið sín fyrstu skref í skólastarfi á Hlaðhömrum og er afmælið því sérstakt tilefni fyrir börn, starfsfólk og fjölskyldur skólans, fyrr og nú.

Mosfellingur óskar Hlaðhömrum hjartanlega til hamingju með hálfrar aldar afmælið.

Birt í Mosfellingi 5. nóvember 2026.