Sunnudagur, 29. nóvember 2026
Forsíða
Fréttir

Fimm fulltrúar Aftureldingar á Evrópumótinu í hópfimleikum

Fimm fulltrúar Aftureldingar á Evrópumótinu í hópfimleikum
1 mín. lestur
Facebook

Evrópumótið í hópfimleikum fór fram dagana 13.–17. október síðastliðinn og átti fimleikadeild Aftureldingar fimm glæsilega fulltrúa á mótinu.

Þrír iðkendur deildarinnar kepptu fyrir hönd Íslands í drengjaflokki. Þeir æfa allir af kappi hjá félaginu og hafa lagt hart að sér til að ná þessum frábæra árangri.

Fulltrúar Aftureldingar í drengjalandsliðinu voru Aron Rökkvi Davíðsson, Fannar Logi Friðriksson og Styrkár Vatnar Reynisson.

Auk þeirra keppti Magnús Indriði Benediktsson með blönduðu liði fullorðinna. Magnús þjálfar jafnframt 1. flokk hjá félaginu.

Stefán Ísak Stefánsson tók einnig þátt í mótinu sem þjálfari blandaðs liðs fullorðinna. Stefán er yfirþjálfari meistaraflokks Aftureldingar og tók auk þess nýlega við starfi deildarstjóra fimleikadeildarinnar.

Fimleikadeildin er afar stolt af landsliðsfulltrúum sínum og þeim árangri sem þeir hafa náð. Það er mikil viðurkenning fyrir félagið að eiga svo öfluga fulltrúa á alþjóðlegum vettvangi, bæði meðal iðkenda og þjálfara.


Birt í Mosfellingi 28. nóvember 2026.