Það var líf og fjör í Hlégarði 8. október þegar Soroptimistaklúbbur Mosfellssveitar hélt sitt árlega vinkonukvöld. Alls komu 155 konur saman til að njóta góðrar kvöldstundar og styrkja um leið starf Bergsins Headspace.
Dagskráin var fjölbreytt og létt yfirbragð einkenndi samkomuna. Albert og Bergþór stýrðu veislunni og fóru á kostum, kórinn Stöllurnar söng fyrir gesti og síðar um kvöldið mætti Elvis á svæðið við mikinn fögnuð viðstaddra.
Góður matur var á boðstólum og happdrætti með fjölmörgum glæsilegum vinningum vakti mikla lukku.
Kvöldið hafði jafnframt mikilvægan tilgang. Alls söfnuðust um 1,7 milljónir króna til styrktar Berginu Headspace, sem veitir ungu fólki stuðning og ráðgjöf.
Albert, Sólrún, Salome og Bergþór
Soroptimistaklúbbur Mosfellssveitar hefur um árabil lagt áherslu á að styðja góð málefni samhliða öflugu félagsstarfi og segjast aðstandendur afar ánægðir með þá góðu þátttöku og þann stuðning sem söfnunin fékk.
Margir komu að framkvæmd kvöldsins og vilja Soroptimistar koma á framfæri þökkum til þeirra fyrirtækja sem gáfu vinninga í happdrættið og þeirra sem lögðu söfnuninni lið með fjárframlögum.
Einnig fá sjálfboðaliðar og þeir sem sáu um matargerð og annan undirbúning sérstakar þakkir, enda þarf margar hendur til að taka á móti 155 gestum.
Klúbbkonur segja kvöldið hafa tekist með miklum ágætum og hlakka þegar til næsta vinkonukvölds.