Styrkir til ungra og efnilegra ungmenna

Íþrótta- og tómstundanefnd veitti styrki til átta ungra og efnilegra ungmenna sem skara fram úr á sviði íþrótta og lista á fundi sínum þriðjudaginn 29. apríl.
Styrkirnir eru ætlaðir þeim ungmennum sem, vegna mikillar þátttöku í æfingum, keppni eða annarri skipulagðri starfsemi, eiga erfitt með að sinna hefðbundinni sumarvinnu líkt og jafnaldrar þeirra.
Markmiðið með styrkjunum er að styðja þessi ungmenni til frekari afreka á sínu sviði með því að veita þeim launagreiðslu yfir sumartímann.
Í ár bárust 14 fullgildar umsóknir. Allir umsækjendur þóttu verðugir styrks, sem gerði valið krefjandi. Úthlutað var í samræmi við gildandi úthlutunarreglur.

Átta einstaklingar hlutu styrk:
Arnór Orri Atlason – tónlistarsköpun
Auður Bergrún Snorradóttir – golf
Baldur Þorkelsson – hjól
Dagur Hrafn Helgason – gítar
Eva Kristinsdóttir – golf
Logi Geirsson – MMA
Úlfur Tobiasson Helmer – píanó
Ævar Smári Gunnarsson – handbolti
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar vill færa öllum umsækjendum innilegar þakkir fyrir metnaðarfullar umsóknir og óskar bæði styrkhöfum og öðrum umsækjendum velfarnaðar í leik og starfi.