Áskorun til verslana í Mosfellsbæ

plastmoso

Stofnaður hefur verið hópur á Facebook fyrir umhverfisvæna Mosfellinga sem vilja hvetja verslunarrekendur til að draga úr plasnotkun. Hópurinn heitir „Áskorun til verslana í Mosó – drögum úr plastnotkun“ og hafa rúmlega þúsund manns þegar gengið til liðs við hópinn. Alþingiskonan Bryndís Haraldsdóttir er stofnandi hópsins og hvetur sem flesta til að taka þátt: „Við íbúar í Mosfellsbæ viljum skora á verslanir hér í bæ að draga eins og kostur er úr plastnotkun. Okkur blöskrar óhófleg notkun á plasti í alls kyns umbúðir. Við viljum leggja okkar af mörkum í umhverfismálum, við munum flokka plast frá öðrum úrgangi en við viljum að þú, verslunarrekandi góður, aðstoðir okkur og dragir úr notkun þinni á plasti eins og kostur er.“

Áskorun til verslana í Mosó – drögum úr plastnotkun